Forystufræðsla - Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna stéttarfélaga-í fjarfundi

Ath: Námskeiðið er einungis í boði í fjarfundi (fjarkennsla).

Námskeiðið er tvö skipti, 3 klst. hvort skipti, þriðjudagur 3. nóvember og fimmtudagur 5. nóvember. kl. 9:00 - 12:00 bæði skiptin.
Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað almennt um hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna stéttarfélaga og veita leiðbeiningar um hvernig best verði staðið að framkvæmd stjórnarstarfa m.t.t. skilvirkni og gagns fyrir stéttarfélögin. Tekin verða fyrir atriði er varða árangursríkt stjórnarsamstarf, ákvarðanatöku, fundarboðun, fundarstjórn, starfsreglur, vanhæfi, siðferði og upplýsingaflæði til stjórnar.

Seinni hluti námskeiðsins fjallar um hversu mikilvægt er að sinna fjárreiðum stéttarfélaga af ábyrgð og fagmennsku. Lögð verður áhersla á ábyrgð stjórna og mikilvægi þess að festa góð vinnubrögð í sessi, s.s. formlegar bókanir um fjármál í fundargerðum. Þátttakendur fá leiðbeiningar um fjárhagsáætlanir, uppsetningu og lestur ársreikninga, efnahagsreikninga, umsýslu sjóða, samþykkt reikninga, ábyrgð og innri endurskoðun, kynningar á reikningum fyrir félagsmenn og innsýn í reglugerðir sem varða þessi mál.


Verð kr.26.000. Stéttarfélögin greiða námskeiðsgjöldin fyrir félagsmenn sína.

Hæfniviðmið

Að efla færni þátttakenda til stjórnarsetu í stéttarfélögum.

Að efla færni þátttakenda við umsjón á fjárreiðum innan stéttarfélaga.

Að þátttakendur öðlist skilning á ábyrgð sinni á fjárreiðum innan stéttarfélaga.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudagur 3. nóvember og fimmtudagur 5. nóvember 2020 kl. 9:00-13:00
  • Lengd
    8 klst.
  • Umsjón
    Bjarni Frímann Karlsson og Guðmundur Hilmarsson
  • Staðsetning
    Í fjarnámi.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.
  • Gott að vita

    Námskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.

    Námskeiðið er haldið í fjarfundi

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá) smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
03.11.2020Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna stéttarfélagaBjarni Frímann Karlsson og Guðmundur Hilmarsson
05.11.2020Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna stéttarfélagaSömu kennarar