Canva, hönnun margmiðlunarefnis
Viltu búa til fallegt og áhrifaríkt efni án þess að vera grafískur hönnuður?
Canva er notendavænt hönnunarforrit, með ókeypis aðgangi, sem gerir þér kleift að búa til fjölbreytt efni hvort sem er fyrir vinnu, nám eða persónuleg verkefni.
Námskeiðið leiðir þig í gegnum grundvallaratriði forritsins og þú lærir að nota tilbúið sniðmát, breyta myndefni með gervigreind og aðlaga hönnun að þínum þörfum.
Með Canva lærir þú að hanna efni sem miðlar skýrum skilaboðum, með faglegu útliti sem fangar athygli. Þú getur búið til kynningar, myndbönd, bæklinga, efni fyrir samfélagsmiðla, ferilskrár og jafnvel einfaldar vefsíður.
Efnistök:
- Kynning á Canva og helstu eiginleikum þess
- Notkun sniðmáta og aðlögun þeirra að eigin þörfum
- Innsetning mynda, texta og annarra þátta
- Hönnun efnis fyrir prent og stafræna miðla
- Ráðleggingar um samræmt og aðlaðandi útlit
- Notkun gervigreindar, m.a. til að búa til og breyta myndum
- Gagnleg ráð til að vinna markvisst, vista, deila og prenta efni
Hæfniviðmið
Að auka færni til að hanna eigið margmiðlunarefni með Canva á einfaldan og áhrifaríkan hátt
Að efla sjálfstraust í notkun hönnunarverkfæra til að miðla skilaboðum á sjónrænan hátt
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja læra að hanna einfalt og faglegt efni fyrir vinnu, nám eða persónuleg verkefni
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Canva | 10:00 | 04:00 | Bjartmar Þór Huduson |