Landhelgisgæslan | Verkefna- og tímastjórnun í Outloook
Á námskeiðinu lærir þú að bæta skipulag og samskipti, einfalda tímastjórnun og verkefnastýringu ásamt því hvernig þú getur haldið betur utan um tengiliði og viðskiptavini. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú lærir að halda dagbók, bóka fundi, sinna tímastjórnun og almenna skjalastjórnun. Þú lærir að geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti. Þú færð verkfæri til þess að auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum. Þú lærir að skrifa minnismiða, geyma þá og flokka, setja upp ferilskrá og skipulag ásamt því að senda, taka á móti og vinna með tölvupóst.
Hæfniviðmið
Að auka færni í að nota Outlook til tímastjórnunar og skipulags.
Fyrirkomulag
Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til xx. xxx en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurStarfsfólk Landhelgisgæslunnar
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatVerkefnaskil
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
31.05.2023 | Verkefna- og tímastjórnun í Outloook | Bjartmar Þór Hulduson |