Fangelsismálastofnun | Excel II

Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn í Excel. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Á þessu námskeiði lærir þú að nota flóknari gagnavinnsluföll (e. functions), síur og gagnaprufun. Þú kynnist mikilvægustu gagnavinnsluföllunum, snúningstöflum (e. Pivot), lærir á uppflettiföll, leitar- og rökfræðiföll. Þú lærir að sækja gögn í gagnavinnslukerfi og hvernig á að raða þeim og sía (e. Data Validation) ásamt því að læra á tengingar milli skjala og innan vinnubókar, verndun og læsingu gagna, fjölvavinnslu (Macros) og gerð þeirra og fjármálaföll.

Hæfniviðmið

Að geta notfært sér ýmiss gagnavinnsluföll.

Að geta notað gagnavinnslukerfi á nytsamlegan hátt.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. desember en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar
  • Markhópur
    Starfsmenn Fangelsismálastofnunar
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
  • Mat
    Verkefnaskil

Gott að vita

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það. Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Fangelsismálastofnun greiði fyrir aðra.

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
01.12.2023Excel framhaldBjartmar Þór Hulduson