Trúnaðarmenn Sameykis | Vaktavinna
Á námskeiðinu verður fjallað um þann hluta kjarasamnings sem snýr sérstaklega að starfsfólki í vaktavinnu. Farið verður yfir vinnuskyldu út frá starfshlutfalli, gerð vaktskrár, lengd vakta, breytingu á vaktskrá, vaktahvata, vægi vinnustunda, vaktaálag, yfirvinnu og stórhátíðarkaup. Skoðað verður hvernig vinnuskylda reiknast með jöfnun vinnuskyldu við dagvinnufólk í huga. Þá verður einnig farið yfir reglur um hvíldartíma og frítökurétt auk orlofsútreikninga.
Hæfniviðmið
Að þekkja helstu hugtök vaktavinnukaflans.
Að þekkja útreikninga á vinnuskilum.
Að þekkja reglur sem fjalla um gerð vaktskrár, framlagningu og breytingar á þeim.
Að þekkja útreikninga á vaktahvata, álagsgreiðslum og yfirvinnu.
Að geta útskýrt breytingar sem tengjast jöfnun vinnuskila milli fólks í vaktavinnu og dagvinnu.
Að þekkja reglur um hvíldartíma og orlofsútreikninga.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, fyrirspurnir og samræðurHelstu upplýsingar
- TímiMánudagur 9. október kl. 12:45 - 15:45
- Lengd3 klst.
- UmsjónFrá kjaradeild Sameykis
- StaðsetningBSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurTrúnaðarmenn Sameykis
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
- MatMæting og þátttaka.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.10.2023 | Vaktavinna - samkvæmt kjarasamningi ríkis og sveitarfélaga | 12:45 | 15:45 | Leiðbeinandi kemur frá kjaradeild Sameykis |