Árangursríkari starfsmannasamtöl
Skráningu lýkur 9. jan. kl.10:00.
Á tímum stöðugra breytinga og áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn.
Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.
Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni.
Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræðaHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 24. janúar kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónInga Þórisdóttir stjórnendamarkþjálfi
- StaðsetningVefnám á rauntíma, kennt á Zoom
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
- MatÞátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
24.01.2023 | Árangursríkari starfsmannasamtöl | 09:00 | 12:00 | Inga Þórisdóttir |