Virðismatskerfi í þágu launajafnréttis | Akureyri

Fræðsludagur um þróun og innleiðingu virðismatskerfa

Á námskeiðinu verður farið yfir ýmsa þætti sem varða hönnun, innleiðingu, notkun og viðhald virðismatskerfa með áherslu á val á matsþáttum og vægi þeirra. Farið yfir áskoranir sem fylgja innleiðingu og notkun slíkra kerfa, fjallað um aðferðafræði við gagnaöflun, starfagreiningar og mat starfa. Fjallað verður um samspil launasetningar og virðismats starfa, lagalegar kröfur til launasetningar og áhrifaþætti launamisréttis. Þá verður fjallað um aðferðafræði samstarfs og samábyrgðar aðila á ferlinu öllu. 
Námskeiðinu er ætlað að styðja við þróun heildstæðs virðismatskerfis, sem samræmist markmiðum um launajafnrétti, gæði opinberrar þjónustu og stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar.

Hæfniviðmið

Að geta unnið að hönnun, innleiðingu, notkun og viðhaldi virðismatskerfa í þágu launajafnréttis

Að þekkja lagalegar kröfur til launasetningar og áhrifaþátta launamunar kynjanna og ólíks mats starfsstétta eftir kyni

Að skilja og geta unnið eftir viðurkenndri aðferðafræði við starfagreiningar með áherslu á að fanga vanmetna þætti starfa

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefnavinna

Helstu upplýsingar

  • Tími
    15. maí 2025 kl. 8.30 - 16.00. Skráningu lýkur 14. maí kl. 12.00
  • Lengd
    7,5 klst.
  • Umsjón
    Amy Ross, sérfræðingur í jafnlaunamálum og þróun virðismatskerfa og starfsfólk Jafnlaunastofu
  • Staðsetning
    SÍMEY, Þórsstíg 4, 600 Akureyri
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    60.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fulltrúar faglegra stjórna virðismats- og starfsmatsverkefna, starfsfólk ráðuneyta, fulltrúar samtaka launafólks og annarra hagaðila sem koma að þróun virðismatsverkefna.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce og Ingibjörg H. Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
15.05.202508:3016:00Amy Ross og starfsfólk Jafnlaunastofu
15.05.2025Húsið opnar. Morgunmatur og kaffi.08:3009:00
15.05.2025Inngangur og kynning: Farið yfir markmið og dagskrá dagsins, virðismatsverkefni kynnt.09:0009:30
15.05.2025Samspil launasetningar og virðismats starfa. Lagalegar kröfur til launasetningar og áhrifaþættir launamisréttis09:3010:00
15.05.2025Kaffihlé10:0010:15
15.05.2025Virðismatskerfi: Markmið virðismatskerfa og aðferðafræði samstarfs og samábyrgðar aðila á ferlinu öllu.10:1511:00
15.05.2025Þróun virðismatskerfa: Hönnun, innleiðing, notkun og viðhald virðismatskerfa.11:0012:00
15.05.2025Hádegishlé12:0013:00
15.05.2025Þróun virðismatskerfa: Hönnun, innleiðing, notkun og viðhald virðismatskerfa. Framhald.13:0014:00
15.05.2025Kaffihlé14:0014:15
15.05.2025Ólík matskerfi, gagnaöflun, starfagreiningar, hlutverk aðila o.fl. Umræður.14:1514:45
15.05.2025Vinnustofa – Notkun virðismatskerfis.14:4515:45
15.05.2025Samantekt, umræður og næstu skref. Úrbótatillögur.15:4516:00
15.05.2025Dagskrá lokið16:0016:00