Aftur í námskeið

Stoppa tímann eða vera með? - vefnám

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

- Vinnumarkaðurinn, vellíðan, seigla og setja mörk

Samfélagið og vinnumarkaðurinn hafa gengið í gegnum miklar og hraðar breytingar á undanförnum árum en hraði þeirra er nú enn meiri en áður. Nútímasamfélag krefst þess að við séum vel að okkur í upplýsingatækni og þróun en á sama tíma eigum við að hlúa að eigin andlegri heilsu.
Á þessu námskeiði verður farið yfir hvernig vinnumarkaðurinn er að breytast og hvernig  sé best að undirbúa sig og taka á móti þessum hröðu breytingum. Farið verður í atriði sem vinnusálfræði hefur fram að færa varðandi nútímann og breytingar á vinnumarkaðnum. Nú reynir meira á svokallaða „mjúka“ færni en áður, það reynir á sveigjanleika, seiglu og lausnamiðaða hugsun. Einnig verða skoðaðar leiðir til að efla sjálfsþekkingu, setja mörk og þekkja hvað nærir okkur.

Efnistök

Að geta gert grein fyrir helstu breytingum á vinnumarkaðnum
Að geta tekist á við breytingar af meira öryggi en áður
Að geta notað lausnamiðaða hugsun til að takast á við breytingar á eigin vinnustað
Að þekkja betur eigin seiglu og leiðir til að efla hana
Að efla eigin sjálfsþekkingu og hvaða verkfæri við höfum í eigin verkfærakistu

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir helstu breytingum á vinnumarkaðnum
Að geta tekist á við breytingar af meira öryggi en áður
Að geta notað lausnamiðaða hugsun til að takast á við breytingar á eigin vinnustað
Að þekkja betur eigin seiglu og leiðir til að efla hana
Að efla eigin sjálfsþekkingu og hvaða verkfæri við höfum í eigin verkfærakistu

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefni. Upptaka verður aðgengileg skráðum þátttakendum í viku eftir að námskeiði lýkur.

Umsjón
Hrefna Guðmundsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 21. nóvember 2024 klukkan 13:00-15:00

Lengd
2 klst
Mat
Mæting
Verð
13.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Fyrir öll sem vilja efla sveigjanleika, seiglu og lausnamiðaða hugsun til að takast á við breytingar í lífi og starfi.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
21.11.2024Stoppa tímann eða vera með?13:00Hrefna Guðmundsdóttir