20 góð ráð í þjónustusímsvörun - Vefnám

Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðri. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma. Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum og verkefnum.

Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is. Þátttakendur fá einnig, fjórum vikum eftir námskeiðslok sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.

Námskeiðið er opið í fjórar vikur.

Hæfniviðmið

Að geta stýrt og stytt samtöl.

Að þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.

Að læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.

Að efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudagur 15. desember 2020
  • Lengd
    10 klst.
  • Umsjón
    Margrét Reynisdóttir
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    18.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er opið öllum
  • Gott að vita
    Starfrænt nám er hægt að stunda hvar og hvenær sem er.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Skila þarf verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst.
  • Ummæli
  • Mér fannst námskeiðið mjög gagnleg og skemmtileg. Eins var gott að vinna þau rafrænt og fá að velja þann tíma sem hentar.

    – Kolbrún Sigmundsdóttir

  • Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.

    – Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði

  • Takk fyrir, vel gert og hagnýtt námskeið sem ég á eftir að nýta mér í starfi.

    – Aldís Eyjólfsdóttir, starfsmannastjóri NLFÍ

  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
15.12.202020 góð ráð í þjónustusímsvörunMargrét Reynisdóttir