Fagnám í umönnun fatlaðra - Framvegis
Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.
Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þau sem vinna með börnum og unglingum í vanda. Breyttar áherslur í starfi kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.
Námið spannar 324 klukkustundir. 164 stundir með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun). Mögulegt er að meta námið til 16 eininga á framhaldsskólastigi.

Hæfniviðmið
að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.
Fyrirkomulag
Námið er kennt tvo daga í viku eftir hádegi. Þrír verkefnadagar verða á meðan náminu stendur, verða þeir auglýstir síðar.Helstu upplýsingar
- TímiNámstíminn er frá 12. september 2023 og til loka febrúar 2024.
- Lengd324 klst.
- UmsjónLíney Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá Framvegis
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurÞau sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þau sem vinna með börnum og unglingum í vanda.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttir
- MatVerkefnaskil og mæting í fjarkennslu á rauntíma.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar, öðrum er bent á að skrá sig hjá Framvegis.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
12.09.2023 | Fagnám í umönnun fatlaðra | Ýmsir sérfræðingar |