Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Í þessu námi verður kennslustofunni breytt í ímyndaða bókhaldsstofu þar sem nemendur fá þjálfun í færslu bókhalds. Námsgögn og aðgangur að bókhaldsforriti eru innifalin í námsgjaldinu. Nemendur mæta með sína eigin fartölvu en fá aðgang að neti.
Nemendur fá þjálfun í færslu fjárhagsbókhalds, sem byggir á verklegum æfingum með raungögnum í raunumhverfi og á rauntíma. Tilvalið nám fyrir þá sem dreymir um að þreyta próf til viðurkenningar bókara en hafa ekki reynslu í færslu bókhalds. Nú gefst þeim sem ekki hafa reynslu í bókhaldsstörfum tækifæri til að stíga skrefið og fá þá þjálfun og færni sem þarf til að starfa við færslu bókhalds.
Kennt er á bókhaldsforritið Reglu þar sem nemendur læra að færa fjárhagsbókhald sem byggir á verklegum æfingum með raungögnum í raunumhverfi á rauntíma. Einnig fjallað um helstu lög og reglugerðir varðandi færslu bókhalds, svo sem lög um bókhald, lög um tekjuskatt og lög um virðisaukaskatt. Jafnframt fjallað um helstu reglur varðandi skil á opinberum gjöldum.
Námið hefst mán. 21. september 2020. Kennt er alla jafna á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í fimm vikur (frá kl. 9:00 - 12:00). Námið er samtals 48 klst. og val um þrjár klst. á bókhaldsstofu.
Frekari upplýsingar gefur Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri námsins hjá EHÍ, netfang: hulda@hi.is, sími: 525-4929. Hulda er með viðtalstíma alla virka daga frá kl. 9:30 - 11:30.
Fyrirkomulag umsóknar:
Áhugasamir skrá sig hjá Starfsmennt sem sendir umsókn um námið til EHÍ. Hulda verkefnastjóri hjá EHÍ tekur við umsókninni og setur sig í samband við umsækjanda. Umsækjendur verða einnig að skrá sig hjá EHÍ.
Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið.
Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.
Að geta fært fjárhagsbókhald.
Að geta stofnað viðskiptavini.
Að geta stofnað vörunúmer.
Að geta gert sölureikning.
Að geta gert vsk uppgjör.
Að geta fært laun.
Að geta gert leiðréttingar í fjárhag.
Að geta gert afstemmingar.
Að geta prentað út stöðu fjárhags, skuldunauta og lánardrottna.
Að geta skoðað rekstararreikning og efnahagsreikning.
Að þekkja helstu lög og reglugerðir varðandi bókhald.
Að geta þekkt helstu reglur um skil á opinberum gjöldum.
Að geta fært fjárhagsbókhald.
Að geta stofnað viðskiptavini.
Að geta stofnað vörunúmer.
Að geta gert sölureikning.
Að geta gert vsk uppgjör.
Að geta fært laun.
Að geta gert leiðréttingar í fjárhag.
Að geta gert afstemmingar.
Að geta prentað út stöðu fjárhags, skuldunauta og lánardrottna.
Að geta skoðað rekstararreikning og efnahagsreikning.
Að þekkja helstu lög og reglugerðir varðandi bókhald.
Að geta þekkt helstu reglur um skil á opinberum gjöldum.
Fyrirlestrar og verklegar æfingar
Tilvalið nám fyrir þá sem dreymir um að þreyta próf til viðurkenningar bókara en hafa ekki reynslu í færslu bókhalds.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Fræðslusetrið Starfsmennt
Staðnám
3 klst
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðildarfélagar Starfsmenntar sem vilja læra að færa bókhald og fá þjálfun í raunverulegu bókhaldsumhverfi með aðgengi að raunverulegum bókhaldsgögnum.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
21.09.2020 | Grunnnám í bókhaldi | 09:00 | Inga Jóna Óskarsdóttir |