Heilabilunarsjúkdómar á efri árum - Vefnám

Á Íslandi er gert ráð fyrir verulegri fjölgun í elstu aldurhópunum og með hækkandi aldri þá aukast líkurnar á að fá heilabilunarsjúkdóm, þó svo að heilabilun sé ekki eðlilegur fylgifiskur öldrunar. Samkvæmt Alþjóða heilbrigðisstofnuninni eru nú þegar 55 milljónir manna í heiminum með heilabilunarsjúkdóma og 10 milljónir bætast við árlega. Á Íslandi má áætla að séu um 5000 manns með heilabilunarsjúkdóma og af þeim fjölda séu um 250 manns undir 65 ára aldri. 
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu heilabilunarsjúkdóma, einkenni og framgang sjúkdóma. Námskeiðið er helst ætlað þeim sem starfa við umönnun og þjónustu heilabilaðra.

Einnig verður farið yfir:

  • Að lifa með heilabilun
  • Lífssaga
  • Samskipti
  • Styðjandi samfélag fyrir fólk með heilabilun
  • Að vera heilavinur
  • Um Alzheimersamtökin
  • Stuðningur við aðstandendur

Markmið með námskeið er að þátttakendur fræðist um hina ýmsu heilabilunarsjúkdóma. Geti sett sig í spor hins veika og aðstandenda þeirra. Fræðast um starfsemi Alzheimersamtakanna og hvar hægt sé að leita sér stuðnings í samfélaginu. 

Fyrirkomulag

Þátttaka

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 23. febrúar kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Sigurbjörg Hannesdóttir, Iðjuþjálfi og fræðslustjóri Alzheimersamtakanna
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    16.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er helst ætlað þeim sem starfa við umönnun og þjónustu heilabilaðra.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en öllum frjálst að taka þátt gegn námskeiðisgjaldi.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
23.02.2022Heilabilunarsjúkdómar á eldri árumSigurbjörg Hannesdóttir