Dómstólasýslan | Almennt tölvunám

Dómarar skrá sig á tölvunámskeið sem eru í opinni skráningu, sjá hér.

Á þessu námskeiði lærirðu grunnhandtökin í tölvunotkun

Þú lærir um Windows stýrikerfið, viðmót þess og virkni. Þú vinnur með möppur, skrár og skipulag og færð leiðbeiningar um hvernig er best að stilla viðmót tölvunnar fyrir þig.

Þú lærir hvernig er hægt að nota Word til þess að leysa fjölbreytt verkefni, helstu skipanir í forritinu og verkfæri. Þú lærir grunnatriði í útlitismótun og uppsetning texta og kynnist prentun. Þú vinnur með myndefni og aðlagar það að texta, vinnur með töflur, inndrátt og sniðmát (e. templates).

Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess. Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu. Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna. Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.

Þú kynnist grundvallarhugtökum í upplýsingatækni og tölvunotkun. Fræðist um upplýsingasamfélagið og hverju þú þarft að huga að áður en þú kaupir tölvu, hvernig þú verndar gögnin þín og hvaða vinnustellingar eru bestar við tölvu.

Hæfniviðmið

Að geta unnið með helstu tölvuforrit, eins og Word og Excel.

Að geta sýnt fram á þekkingu á internetinu, tölvupósti og upplýsingatækni.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 4. desember en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    60 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar
  • Markhópur
    Starfsfólk dómstólanna
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
  • Mat
    Verkefnaskil

Gott að vita

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.

Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.

Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra (nema dómara). Dómarar skrá sig á tölvunámskeið í opinni skráningu, sjá hér, en þeir geta sótt um endurgreiðslu í sinn starfsmenntunarsjóð.

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
04.12.2023Almennt tölvunámBjartmar Þór Hulduson