Náms- og starfsráðgjöf - Viðtöl í mars - skráning

Skráðu þig í viðtal við náms- og starfsráðgjafa Starfsmenntar. Ráðgjöfin er fyrir alla félagsmenn aðildarfélaga BSRB, þeim að kostnaðarlausu. Tími viðtals er skráður 28. febrúar en dagur og tími er að eigin vali í samráði við ráðgjafa. Haft verður samband við þig til að gefa þér viðtalstíma.

Meginmarkmið þjónustunnar er að efla vitund einstaklinga um styrkleika sína, viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í námi og starfi. Ráðgjöfin nýtist öllum óháð aldri eða stöðu sem þjónusta á sviði símenntunar.

Ráðgjafi aðstoðar þig við að:

 •  átta þig á áhuga þínum og tengja við nám og störf.
  • þekkja veikleika og styrkleika og efla starfshæfni.
  • vega og meta hin ýmsu störf og starfssvið.
  • útbúa ferilskrá.
  • leita að áhugaverðu tómstundastarfi eða námi.
  • efla sjálfstraust.
  • bæta samskipti og samstarfshæfni.
  • læra að setja mörk og stjórna tilfinningum.
  • forgangsraða, skipuleggja og stýra tíma.

Einnig stendur félagsmönnum til boða að taka áhugasviðspróf sem geta hjálpað einstaklingum við að greina og þekkja áhugasvið sitt og hvernig sú sjálfsþekking getur komið að gagni í námi, starfi og tómstundum.


Viðtölin fara fram á skrifstofu Starfsmenntar, Skipholti 50b eða í gegnum fjarfund. Skráðu þig í viðtal hér á skráningarsíðunni og í framhaldinu höfum við samband og finnum heppilegan tíma fyrir viðtalið. Einnig er hægt að panta tíma í síma 550 0060 eða í gegnum netfangið smennt@smennt.is.

Helstu upplýsingar

  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir náms- og starfsráðgjafi
  • Staðsetning
    Fræðslusetrið Starfsmennt, Skipholt 50b, 105 Reykjavík, (3. hæð). Bæði er boðið upp á staðbundin viðtöl og viðtöl á vef í gegnum Teams eða Zoom.
  • Tegund
    Viðtal
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Allir félagsmenn aðildarfélaga BSRB
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.03.2022Viðtal við náms- og starfsráðgjafa Starfsmenntar.09:0009:00Igibjörg Hanna Björnsdóttir náms- og starfsráðgjafi