Fagnám í umönnun fatlaðra
Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.
Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda. Breyttar áherslur í starfi kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.
Kennslufyrirkomulag
Á Teams í fjarnámi og í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 3. hæð. Kennt verður seinni part dags þrjá daga í viku í dreifnámi og einn laugardag í mánuði í staðnámi. Námið er í heildina 324 klukkustundir.
Engin lokapróf eru en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 16 eininga á framhaldsskólastigi.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.
Hæfniviðmið
Að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.
Fyrirkomulag
Fjarnám og lotur í staðnámi.Helstu upplýsingar
- TímiNámstíminn er frá 17. janúar til 15. apríl 2022.
- Lengd324 klst.
- UmsjónNanna Bára Maríasdóttir og Hólmfríður Karlsdóttir
- StaðsetningReykjanesbær
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÞeir sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda.
- Gott að vita
Námið er kennt á Teams og í húsnæði MSS.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.
- MatVerkefnaskil og 80%mætingarskylda og virk þátttaka.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
17.01.2022 | Fagnám í umönnun fatlaðra | 00:00 | 00:00 | Ýmsir sérfræðingar |