BVV - Grunnnámskeið í betri vinnutíma í vaktavinnu

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði kerfisbreytingar betri vinnutíma í vaktavinnu, sem tekur gildi 1. maí 2021. Þættir sem farið verður yfir á námskeiðinu:

·        Markmið og leiðarljós breytinganna – öryggi,heilsa og jafnvægi vinnu og einkalífs

·        Ávinningur fyrir starfsfólk og vinnustaði

·        Kerfisbreytingin í hnotskurn – breytt vaktaálag, vægi vinnuskyldustunda og vaktahvati

·        Umbótasamtal

·        Hvað einkennir gott og heilsusamlegt vaktaskipulag?

Þá verður þátttakendum veittar greinargóðar upplýsingar um allt fræðsluefni sem aðgengilegt er á betrivinnutimi.is og þeim leiðbeint um hvernig þau geta aflað sér frekari þekkingar á eigin spýtur.

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem starfar í vaktavinnu og trúnaðarmönnum hjá ríkisstofnunum, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum og þeim sem starfa hjá sjálfseignarstofnunum sem eru í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Kennt verður í gegnum TEAMS forritið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudagur 11. janúar kl. 13:00-14:00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Verkefnastjórn betri vinnutíma í vaktavinnu, Bára H. Jóhannsdóttir, Aldís Aradóttir Pind og Dagný Magnúsdóttir
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem starfar í vaktavinnu og trúnaðarmönnum hjá ríkisstofnunum, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum og þeim sem starfa hjá sjálfseignarstofnunum sem eru í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
  • Gott að vita
    Ef þátttakandi getur ekki tekið þátt í námskeiði sem hann hefur skráð sig á, verður viðkomandi að afskrá sig á „mínum síðum“, þar sem aðeins er hægt að skrá sig einu sinni á hvert námskeið.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
11.01.2021Grunnnámskeið fyrir betri vinnutíma í vaktavinnuBára, Aldís og Dagný