Ás styrktarfélag | Varnarviðbrögð
Hvernig bregðumst við á öruggan og faglegan hátt þegar erfiðar aðstæður skapast í starfi?
Í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður sem reyna á viðbragð, yfirvegun og öryggi. Þetta námskeið fjallar um hvernig greina má snemmbúin merki um spennu eða vanlíðan sem geta þróast í átök og hvernig hægt er að bregðast við á rólegan og öruggan hátt áður en aðstæður magnast.
Áhersla er lögð á virðingu, öryggi og mannlega nálgun. Þátttakendur læra hvernig hægt er að draga úr spennu, styðja einstakling til jafnvægis og nota einföld varnarviðbrögð ef til árásar kemur, án þess að valda skaða. Námskeiðið byggir á hagnýtum dæmum og æfingum sem tengjast raunverulegum aðstæðum í starfi.
Efnistök:
- Einkenni hegðunar sem geta leitt til átaka eða árásar
- Fyrirbyggjandi samskipti og róandi nálgun
- Örugg viðbrögð þegar spenna eykst
- Varnarviðbrögð sem miða að öryggi allra
- Hvernig styðja má einstakling úr árásarham í jafnvægi
- Verklegar æfingar og umræður um raunverulegar aðstæður
Hæfniviðmið
Að öðlast öryggi og færni til að bregðast við krefjandi aðstæðum á faglegan og öruggan hátt
Að efla hæfni til að verja sig án þess að valda skaða og stuðla að ró og öryggi í umhverfinu
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- Tími28. aprlíl 2026 kl. 13.00 - 16.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3 klst.
- UmsjónFelix Högnason, þroskaþjálfi og atferlisfræðingur
- StaðsetningÁs styrktarfélag, Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur. Salur: Vogur
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja styrkja eða rifja upp viðbragðs- og öryggisfærni
- MatMæting og þátttaka
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 28.04.2026 | Varnarviðbrögð | 13:00 | 16:00 | Felix Högnason |