Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Veikindi starfsfólks geta vakið upp margar spurningar – bæði fyrir vinnuveitendur og starfsfólk. Í þessu námskeiði er farið yfir helstu lagareglur sem gilda um veikindaforföll, með hagnýtum dæmum úr raunveruleikanum. Fjallað verðu um álitamál sem atvinnurekendur geta staðið frammi fyrir við veikindaforföll starfsfólks, t.d. þegar um er að ræða langvarandi fjarvistir, veikindi við uppsögn og veikindi í orlofi, sem og hlutaveikindi og hver séu mörkin á milli veikinda og örorku.
Leitast verður við að byggja umfjöllunina á raunhæfum dæmum eins og kostur er.
Efnistök:
Námskeiðið er í beinu streymi og einnig verður upptaka af því aðgengileg eftir að því lýkur.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 18.03.2026 | Veikindaforföll - það sem þarf helst að vita um réttindi og skyldur vinnuveitenda og starfsfólks. | 09:00 | Kjartan Bjarni Björgvinsson |