Á þessu námskeiði lærir þú að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar.
Þú kynnist sniðskjölum og hvernig er best að nota sniðmát, gera textabreytingar, stilla litasamsetningar og myndefni. Þú lærir á lista, töflur, mynd- og skipurit, hvernig á að stilla haus og fótlínur og setja upp minnispunkta. Þú lærir að raða glærum, setja upp útlínur, nota hreyfimyndir, hljóðsetningu og hvernig á að setja upp sjálfvirka spilun.
Þetta námskeið hentar öllum sem vilja flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan máta og koma efni á framfæri á lifandi og eftirtektarverðan hátt.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.