Aftur í námskeið

Viðurkenndur bókari - Endurmenntun Háskóla Íslands

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Endurmenntun HÍ býður nú í þriðja sinn nám til undirbúnings fyrir próf til viðurkenningar bókara á vegum atvinnuvega- og nýsköpurnarráðuneytisins skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald.

Námið er eitt misseri og skiptist í þrjá hluta: Reikningshald, skattskil og upplýsingatækni ásamt raunhæfu verkefni úr efnisþáttum I. og II. prófhluta. Námið má fá metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla, að því gefnu að þátttakandi uppfylli inntökuskilyrði HÍ ásamt því að ljúka öllum prófhlutum til viðurkenningar bókara með tilskilinni lágmarkseinkunn.

Umsóknarfrestur er til 19. júní 2016.

Sjá nánari lýsingur hjá EHÍ.

Hæfniviðmið
Undirbúningsnám á háskólastigi. Námið undirbýr nemendur fyrir próf á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Fyrirkomulag

Kennt er í 10 lotum. Kennsla hefst í byrjun ágúst og lýkur í desember. Kennt er aðra hverja helgi.

Kennsla fer fram á fös. kl. 16:15- 19:15 og lau. 8:30 - 12:30 og 13:00 - 16:00.

Prófdagar liggja ekki fyrir hjá Prófnefnd bókara og eru ofangreindar tímasetningar birtar með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar.

Kennslan hefst 5. ágúst og lýkur 13. desember 2016.

Gott að vita
Öðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, s. 525 4444.
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir - bjorg(hjá)smennt.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 5. ágúst 2016-00:00
  • 13. desember 2016 klukkan 00:00-00:00

Lengd
0 klst (0x2)
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur

Námið ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á starfi á sviðum bókhalds og fjármála.
Eingöngu fyrir félagsmenn.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
05.08.2016Viðurkenndur bókari00:00Endurmenntun Háskóla Íslands