Aftur í námskeið

Listin að hakka fólk - sálfræði hakkarans

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Bragðvísi (e. social engineering) hefur risið upp sem ein stærsta ógnin fyrir bæði einstaklinga og stofnanir. Bragðvísi snýst um hvernig hægt er að beita sálfræðilegum aðferðum til þess að plata fólk og ná fram aðgangi að jafnvel viðkvæmustu gögnum þeirra. Í þessu erindi verður farið yfir þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að ná þessu fram, raunveruleg dæmi og þær aðferðir sem við getum notað til að draga úr líkum að við verðum fórnarlamb í slíkum árásum.

Hörn er með BSc gráðu í sálfræði og MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Í gegnum tíma hennar hjá Syndis hefur hún borið ýmsa hatta, en sá nýjasti er „hakkari“ þar sem hún notar þekkingu sína úr sálfræði til að framkvæma bragðvísis árásir (e. social engineering).

Efnistök

Að þekkja þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að plata fólk

Hæfniviðmið

Að þekkja þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að plata fólk

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og spurt og svarað í lokin

Umsjón

Hörn Valdimarsdóttir

Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform

Streymi

Tími
  • 7. mars 2024 klukkan 09:00-10:00

Lengd

1 klst

Mat

Mæting

Verð

6.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Öll sem vilja þekkja aðferðir hakkara

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

07.03.2024

Listin að hakka fólk

09:00

Hörn Valdimarsdóttir