Word grunnur - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 1. ágúst
Kennt er hvernig hægt er að nota ritvinnsluforritið Microsoft Word til að leysa margvísleg verkefni.
Notendaviðmót og virkni eru skýrð ásamt því að farið er yfir helstu skipanir og verkfæri. Farið er í grunninn á útlitsmótun texta og uppsetningu hans, og prentun skoðuð.
Námsþættir:
- Myndir og myndefni sett inn í skjal og aðlagað að texta.
- Unnið er með töflur, inndrátt og frumskjöl (templates).
- Gröf og töflur úr Excel flutt inn í skjal.
Markmið
Að byggja upp góða grunnfærni í Word forritinu.
Að auka þekkingu til að forritið nýtist þátttakendum til fulls.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt.Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma.
Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar hjá kennara í síma 788 8805 frá kl. 10-20 eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. ágúst 2022 en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám
- TegundVefnámskeið
- Verð39.500 kr.
- MarkhópurAllir sem vilja nýta kosti Word til fullnustu.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is
- MatVerkefnaskil
Gott að vita
Vefnám sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Kennari |
---|---|---|
01.08.2022 | Word grunnur | Bjartmar Þór Hulduson |