8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum
Fjallað er um alla helstu lykilþætti sem þarf að hafa í huga í tölvupóstsamskiptum. Einnig er fléttað inn í námskeiðið samskipti í gegnum netspjall.
Þátttakendur fá rafbókina 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum (2015) Nánari upplýsingar um bókina má sjá www.gerumbetur.is.
Hæfniviðmið
Að spara tíma.
Að auka afköst.
Að efla rafræna þjónustu gangvart viðskiptavinum og samstarfsfólki.
Að auka öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum, verkefnum og gátlista fyrir eigin tölvupóstsamskipti.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í tölvupóstsamskiptum.
Helstu upplýsingar
- Tími13. mars 2024. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd10 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum.
- TegundVefnám
- Verð18.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er opið öllum.
- Gott að vita
- MatSkila þarf verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst.
- Ummæli
Takk fyrir skemmtilegt og fræðandi námskeið.
– Björn Ingi Jósefsson, starfsmaður hjá Ríkisskattstjóra.
Þetta var virkilega gott, aðgengilegt til að vinna og gerir mann gagnrýnan á sjálfan sig varðandi tölvupóstsamskipti.
– Ólöf Harðardóttir, skrifstofumaður hjá Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála
Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.
– Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.03.2024 | 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum. | 00:00 | 00:00 | Margrét Reynisdóttir |