Reykjanesbær | Varnarviðbrögð kl. 8:30 - 11:30
Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðar og óæskilegar aðstæður skapast í starfi. Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem gæti leitt til átaka og ofbeldis, og hvernig bregðast eigi við til þess að verjast án þess að skaða skjólstæðinginn. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi.
Hæfniviðmið
Að geta varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.
Að geta gert grein fyrir einkennum hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.
Að geta stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 28. september kl. 08:30 - 11:30
- Lengd3 klst.
- UmsjónFelix Högnason, atferlisfræðingur, lektor við Oslo Metropolitan University í Osló, með 3. dan svart belti í ju jitsu.
- StaðsetningTjarnargata 12, 230 Reykjanesbær (matsalur í kjallara).
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurStarfsfólk Reykjanesbæjar
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatMæting og þátttaka
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum. Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélagið greiðir námskeiðsgjald fyrir aðra. Æskilegt er að mæta í þægilegum fatnaði.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
28.09.2023 | Varnarviðbrögð | 08:30 | 08:30 | Felix Högnason |