Sýslumaðurinn á Suðurlandi - Líkamsbeiting og heilsa - Vefnám - Kl. 10:00-12:00

Fjallað er um líkamsbeitingu, mataræði, hreyfingu, svefn, streitu og geðheilbrigði.

Sérstaklega er farið í líkamsbeitingu við mismunandi starfsaðstæður.

Einnig er farið í hvaða áhrif lífshættir hafa á heilbrigði og með hvaða leiðum má hafa áhrif á lífsstíl.

Kennt er í gegnum Teams og kennarinn sendir hlekk inn á námskeiðið með góðum fyrirvara.

Hæfniviðmið

Að þekkja hina ýmsu þætti í vinnuumhverfi sínu sem hafa áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Að þekkja leiðir til að draga úr líkamlegu og andlegu álagi við vinnu.

Að fá æfingu í réttri líkamsbeitingu og vinnutækni við mismunandi aðstæður og störf.

Að öðlast þekkingu á mikilvægi heilbrigðs lífernis sem fyrirbyggjandi þáttar í daglegu lífi fólks.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 20. maí kl. 10:00-12:00
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Ásgerður Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari hjá Vinnuheilsu.
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Sýslumannsins á Suðurlandi
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
20.05.2021Líkamsbeiting og heilsaÁsgerður Guðmundsdóttir