Microsoft Teams og OneDrive - Vefnám

Á þessu námskeiði er farið yfir bæði OneDrive og Teams forritin frá Microsoft en þessi forrit vinna náið saman og varla hægt að nota annað án þess að komast í kynni við hitt á einhverjum tímapunkti.

Byrjað er á að fara yfir OneDrive og kynnumst hvernig skýjalausnir halda utan um gögnin og hvar hægt er að nálgast þau. 
Með OneDrive gefst tækifæri til að geyma gögn miðlægt, deila þeim með öðrum og nota útgáfustjórnun. Næst er farið yfir Teams forritið, hvernig það virkar og hvað hægt er að gera þegar kemur að samskiptum, samvinnu, aðgengi gagna og fleira. 
Microsoft Teams er hentugt fyrir teymi einstaklinga sem vinnur saman, deilir gögnum og eða vill eiga samskipti sín á milli í gegnum spjallborð, svo eitthvað sé nefnt.

Hæfniviðmið

Að þekkja muninn á OneDrive og One Drive 4Bussiness.

Að átta sig á hvernig OneDrive virkar.

Að geta vistað gögn í OneDrive.

Að átta sig á hvernig unnið er með gögn í rauntíma.

Að geta deilt gögnum frá OneDrive.

Að geta afritað og endurheimt og skjöl.

Að átta sig á hvaða möguleika Teams forritið býður upp á.

Að þekkja muninn á hópum og rásum.

Að þekkja réttindi notenda.

Að þekkja muninn á OneDrive og SharePoint (geymslusvæði).

Að þekkja aðgengi að öðrum kerfum innan úr Teams.

Að þekkja muninn á opnum hópum og lokuðum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni.
Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu.
Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Þátttakendur þurfa að hafa Teams aðgang uppsettan áður en að námskeið hefst.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudagur 9. nóvember kl. 13:00 - 16:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Atli Þór Kristbergsson, ráðgjafi og kennari
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað notendum Office 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur.
  • Gott að vita

    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.

    Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

    Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
09.11.2021Microsoft Teams og OneDriveAtli Þór Kristbergsson