Sýslumenn - Microsoft Teams, dagleg notkun kl. 9:00 - 11:00 - Vefnám
Microsoft Teams, ásamt öðrum Microsoft Office 365 (O365) afurðum hefur verið innleitt hjá fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga enda frábært tæki til að halda utan um teymi, fjarfundi, deila gögnum, spjalla (e. chat) og margt fleira.
O365 afurðir á borð við Microsoft Teams hafa tekið miklum breytingum síðan það kom fyrst út og oft getur verið erfitt að fylgjast með því nýjasta.
Á þessu námskeiði verður farið yfir daglega notkun svo sem uppröðun teyma, festur, síur, bókamerki, skipanir, tengingar við önnur kerfi, uppsetningu lista, samskipti við SharePoint, nýjar viðbætur og fleira.
Yfirferð:
- Uppröðun teyma – notendur
- Rásir – vinsælast
- Notkun á virkni (e. activity) – síun
- Merkingar á skilaboðum
- Skipanir: ónáðið ekki, ólesið, vistað, fara til
- Tengingar við önnur kerfi
- Notkun á listum innan Teams
- Tenging við SharePoint: sniðmát – ný skjöl, aðgengi að gögnum
- Samvinna á skrám og merkingar
- Fundir – bókun, rásir og upptökur
- Flýtileiðir
Fyrirkomulag
FyrirlestuHelstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 26. apríl kl. 09:00 - 11:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónAtli Þór Kristbergsson, ráðgjafi og kennari
- StaðsetningVefnám
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað notendum Office 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur.
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins ætlað starfsmönnum sem starfa hjá sýslumannsembættunum. Aðildarfélögum Starfsmenntar er námskeiðið að kostnaðarlausu, embættin greiða fyrir aðra starfsmenn. Námskeiðið verður kennt í gegnum TEAMS forritið.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatÞátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is5500060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
26.04.2022 | Microsoft Teams, dagleg notkun | 09:00 | 11:00 | Atli Þór Kristbergsson |