Aftur í námskeið

Bókhald grunnur - HR - Vefnám

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Um námið
Bókarar þurfa að tileinka sér fjölbreytta þekkingu á reikningshaldi, lögum um skattskil og tölvukerfum. Þetta námskeið er kennt í fjarnámi og veitir nemendum fyrirtaks grunn í ofangreindum þáttum og er góður undirbúningur fyrir námslínuna Viðurkenndir bókarar.

Meðal þess sem kennt er:
Töflur og formúlur í Excel
Útgáfa reikninga
Virðisaukaskattur
Laun og tengd gjöld
Mat krafna, birgða og útreikningur lána
Ársreikningur
Skattskylda og undanþágur
Hlutverk bókara og bókhaldslögin
Tekjuskráning og staðgreiðsla

Um bókhald
Bókarar starfa víða í stjórnsýslunni og í atvinnulífinu enda eru langflest fyrirtæki, stofnanir, félög, sambönd, sjóðir og einyrkjar með bókhaldsskyldu samkvæmt lögum. Þekking bókara á því hvernig setja á ráðstöfun fjármuna fram með greinargóðum hætti er því gagnleg og mikils metin á fjölmörgum sviðum samfélagsins.

Fyrir hverja er námskeiðið
Farið í grunninn í bókhald og því eru ekki neinar forkröfur í námið. Námskeiðið hentar einnig fyrir þá sem eru þegar með einhverja reynslu af bókhaldsstörfum eða þekkja grundvallaratriði í bókhaldi en vilja snerpa á þekkingu sinni.

Kennsla
Þrír reyndir kennarar sjá um kennslu; löggiltir endurskoðendur og héraðsdómslögmaður.

Próf og heimavinna
Nemendur þurfa ekki að þreyta próf og ekki eru sett fyrir aukaverkefni.  Verkefni eru unnin um leið og hlustað/horft er á fyrirlestrana.

Birting fyrirlestra vorið 2021
Námið er 48 klst. og er fjarnám með staðarlotu í lok námsins.
Hljóðfyrirlestrar eru birtir í upphafi námskeiðsins og samanstanda af:

Fjarnám - Reikningshald
Sex fyrirlestrar sem bera þessa titla:

Bókhald
Bókun tekna
Bókun kostnaðar
Laun og tengd gjöld
Mat og færslur
Afstemmningar

Fjarnám - Skattskil
Tveir fyrirlestrar:

Skattskil hluti I
Skattskil hluti II

Staðarlota - Excel
Laugardagur 6. mars 2021 kl. 9-17
Sunnudagur 7. mars 2021 kl. 9-17

Fyrirkomulag umsóknar:
Umsækjendur verða einnig að skrá sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík.

Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið. 

Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.

Fyrirkomulag
Námið er 48 klst. og er fjarnám með staðarlotu í lok námsins.
Gott að vita
Námið er aðeins fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir - bjorg(hjá)smennt.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 10. febrúar 2021-00:00

Lengd
0 klst
Mat
Verkefnaskil
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur
Fyrir þá sem vilja kynna sér grunnatriði í bókhaldi og undirbúa sig fyrir frekara nám í faginu, t.d. til Viðurkennds bókara.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
10.02.2021Bókhald - grunnur00:00