Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð
Á námskeiðinu verður fjallað um lagaumhverfi í skjalastjórn á Íslandi og hvernig skjalastjórn tengist mikilvægum málefnum á vinnustöðum eins og rekjanleika gagna og ákvarðana ásamt tengslum þekkingar og gæða og þekkingarstjórnunar. Jafnframt verður fjallað um mismunandi tegundir skjala og meðhöndlun þeirra sem og gerð eftirfarandi: skjalastefnu, skjalavistunaráætlunar, málalykils, skjalakerfis og lýsigagna. Auk þess verða rafræn skil tekin fyrir.
Hæfniviðmið
Að geta notað fjölbreyttar leiðir við greiningu gagna.
Að geta metið kosti og galla við innleiðingu og hönnun skjalakerfis.
Að geta gert grein fyrir þroskastigi í skjalastjórn.
Að geta notað ólíkar leiðir við meðhöndlun skjala, s.s. tölvupóstur, pappír, teikningar, ljósmyndir, bækur og skýrslur.
Að geta beitt þekkingarstjórnun, þ.e.a.s. að þekking sé ekki falin hjá einstaka starfsmönnum.
Að geta gert grein fyrir hlutverki héraðskjalasafna og Þjóðskjalasafns Íslands.
Að geta útskýrt ISO 15489 alþjóðlegan staðal um skjalastjórn.
Að geta útskýrt virkni rafrænna skila, grisjunar, skráningu, pökkun og skjalageymslum.
Fyrirkomulag
Fyrirlestrar, umræður og létt verkefnavinna.Helstu upplýsingar
- Tími13. og 20. mars 2024 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur 27. febrúar kl. 10.00.
- Lengd6 klst.
- UmsjónÞorgerður Magnúsdóttir, gæðastjóri hjá FSRE, MIS í upplýsingafræði og CIP vottuð og Eva Ósk Ármannsdóttir, skjala- og upplýsingastjóri hjá FSRE, BA í upplýsingafræði og diplóma í jákvæðri sálfræði.
- StaðsetningVefnám á rauntíma, kennt á Zoom
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir þau sem vinna með stjórnun gagna á sínum vinnustað, s.s. vistun, skráningu og pökkun. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.
- Gott að vitaEingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting, þátttaka.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.03.2024 | Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð | 09:00 | 12:00 | Þorgerður Magnúsdóttir og Eva Ósk Ármannsdóttir |
20.03.2024 | Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð | 09:00 | 12:00 | Sömu kennarar |