Áhersla er lögð á að þátttakendur tileinki sér nytsamlegar leiðir til að takast á við krefjandi samskipti. Unnið er með greiningu á því hvernig framkoma reynist þátttakendum erfiðust og hvers vegna, hvernig þátttakendum er tamt að bregðast við ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir.
Greining á því hvernig:
- Framkoma/aðstæður reynast þátttakendum erfiðar og hvers vegna – í hverju felst vandinn og hvers vegna geta samskipti verið krefjandi?
- Þátttakendum er tamt að bregðast við krefjandi aðstæðum s.s. ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir – hvað get ég gert til að draga úr vandanum?
- Sjálfsþekking og sjálfstraust hefur áhrif á færni í samskiptum s.s. að hjúpa sig, sjálfsstjórn, að setja sig í spor annara, hlustun, raunhæfar væntingar til starfsumhverfis, setningar og ,,tækni“ sem gott er að grípa til
Lögð er áhersla á:
- Styrkleika þátttakenda í ólíkum aðstæðum og leiðir til að temja sér ný viðbrögð og yfirfæra styrkleika frá einum aðstæðum yfir í aðrar – vertu sterki aðilinn!
- Mikilvægi þess að leiða hugann að ástæðum fyrir vandanum t.d. með sjálfsþekkingu og að setja sig í spor einstaklingsins – hvað býr að baki?
- Ýmsar leiðir til að halda jafnvægi og vera lausnarmiðaður í erfiðum aðstæðum – auktu færni þína, sjálfsaga, sjálfsöryggi og vertu sá sem er flinkur í að tala við alla og taka á málum!
- Hvernig má á kurteislegan hátt standa fast á sínu, leiða samtalið á yfirvegaðri braut, setja mörk en sýna um leið skilning – sjálfsstyrkur og rósemi!
- Leiðir til að vernda sjálfan sig gegn ágengum einstaklingum og taka ekki ásakanir persónulega – taktu þetta ekki inn á þig! V
- Viðhorf, líta á krefjandi einstaklinga sem áskorun til að þroska eigin samskiptafærni og persónustyrk – reynslubankinn: Þú ert alltaf að læra og styrkjast!
Markmið að trúnaðarmaður:
- Fái innsýn í hegðun sem einkennir krefjandi samskipti
- Öðlist meira öryggi til að bregðast rétt við í ágengri framkomu