Aftur í námskeið

Dómstólasýslan - Word grunnur - Vefnám - Valfrjálst upphaf. Skráning frá 07.03 til 30.06

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Námskeiðið er vefnámskeið, sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Þátttakendum stendur til boða "valfrjálst upphaf" - þ.e.a.s. hægt er að hafa samband við kennarann og hefja leikinn um leið og skráning er samþykkt.

Námsþættir:

  • Kennt hvernig hægt er að nota ritvinnsluforritið Microsoft Word til að leysa margvísleg verkefni.
  • Notendaviðmót og virkni útskýrð ásamt því að farið er yfir helstu skipanir og verkfæri.
  • Farið í grunninn á útlitsmótun texta og uppsetningu hans og prentun skoðuð.
  • Farið yfir hvernig myndir og myndefni eru sett inn og aðlöguð að texta.
  • Unnið með töflur og inndrátt, frumskjöl (templates) og gröf og töflur úr Excel innflutt.

Efnistök

Að byggja upp góða grunnfærni í Word forritinu.
Að efla þekkingu til að forritið nýtist þátttakendum til fulls.

Hæfniviðmið

Að byggja upp góða grunnfærni í Word forritinu.
Að efla þekkingu til að forritið nýtist þátttakendum til fulls.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið.

Gott að vita

Aðstoð er veitt í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is og í þjónustusíma 788 8805 frá kl. 10-20 alla virka daga.

Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það. 

Samstarfsaðili

Tölvuskólinn Nemandi

Umsjón

Bjartmar Þór Hulduson

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce - smennt(hjá)smennt.is
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

18 klst

Mat

Verkefnaskil

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Starfsmenn dómstólanna