Outlook / Verkefna- og tímastjórnun - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 18. des.
Outlook er hentugt fyrir fólk sem vill bæta skipulag og samskipti, auðvelda tímastjórnun og verkefnastýringu og halda betur utan um tengiliði og viðskiptavini.
Námsþættir:
- Halda dagbók, bóka fundi og sinna tímastjórnun. Almenn skjalstjórnun.
- Geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti. Auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum.
- Skrifa á minnismiða, geyma þá og flokka. Ferilskrá og skipulag. Senda og taka á móti – flokka og vinna með tölvupóst.
Hæfniviðmið
Aukin færni í að nota Outlook til tímastjórnunar og skipulags.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt.Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti kennari(hjá)nemandi.is, vefspjalli og í þjónustusíma 788 8805 frá kl. 10-20 á virkum dögum. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Nánari upplýsingar hjá kennara námskeiðsins.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 18. desember en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð39.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja bæta almenna færni sína í Outlook.
- Gott að vitaVefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
18.12.2021 | Outlook / Verkefna- og tímastjórnun | Bjartmar Þór Hulduson |