Reykjanesbær | Nauðung í starfi með fötluðu fólki
Á námskeiðinu verður fjallað um hugtökin nauðung og þvingun út frá mismunandi sjónarhornum, svo sem lagalegum, sálfræðilegum, hagnýtum, hugmyndafræðilegum, félagslegum, læknisfræðilegum, siðferðilegum, sögulegum og sumir út frá eigin reynslu af nauðung og þvingun, annaðhvort sem gerendur eða þolendur. Fjallað verður helstu lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur kynnist hugtakinu nauðung í starfi og í hverju það felst.
Að þátttakendur þekki lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum.
Að þátttakendur geti afstýrt ólögmætum árásum.
Að þátttakendur þekki öruggustu leiðina til að verja sig.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiMánudagur 17. apríl kl. 13:00 - 16:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónÁstríður Erlendsdóttir
- StaðsetningNesvellir, salur á 2.hæð, Njarðarvellir 4, 260 Reykjanesbær
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurStarfsfólk Reykjanesbæjar
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatMæting og þátttaka
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum. Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélagið greiðir námskeiðsgjald fyrir aðra.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
17.04.2023 | Nauðung í starfi með fötluðu fólki | 13:00 | 16:00 | Ástríður Erlendsdóttir |