Fangelsismálastofnun | Áfallamiðuð nálgun á vinnustað

Skráningu lýkur föstudaginn 13. október kl. 14.

Vilt þú geta komið fram á viðeigandi hátt við skjólstæðinga og/eða samstarfsfólk sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu?
Áfallamiðuð nálgun miðar að því að skapa umhverfi og aðstæður þar sem fólki finnst það öruggt og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.
Á námskeiðinu verður fjallað um hvað felst í nálgun þar sem ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð og hvernig vinnustaðir geta innleitt slíka nálgun.

Umræðuþættir:

  • Hvað er áfallamiðuð nálgun?
  • Hvers vegna áfallamiðuð nálgun?
  • Eðli áfalla og áhrif þeirra
  • Þroskun taugakerfis okkar
  • Mikilvægi tengsla og félagslegra samskipta

Hæfniviðmið

Að þátttakendur hafi grunnþekkingu á áhrifum áfalla og samskipta á heilsu og velferð og átti sig á algengi óunninna áfalla.

Að þátttakendur geti skilið og tekið tillit til þess hversu yfirgripsmikil áhrif áföll geta haft á upplifun, líðan og hegðun fólks.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudagurinn 16. október kl. 9:00-12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Lilja Sif Þorsteinsdóttir, sálfræðingur hjá Heilshugar
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á ZOOM
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Fangelsismálastofnunar
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
    ingibjorg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.10.2023Áfallamiðuð nálgun á vinnustað09:0012:00Lilja Sif Þorsteinsdóttir, sálfræðingur hjá Heilshugar