Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Photoshop. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú leysir fjölbreytt verkefni þar sem þú lærir á grunnverkfæri myndvinnslu í Photoshop Elements. Þú lærir að hreinsa burt bletti og bólur af andlitsmyndum, færa eða fjarlægja fólk eða hluti af mynd, lagfæringar og litajöfnun, hvernig á að nota síur og lög ásamt því að breyta bakgrunninum. Þá lærir þú hvernig myndvinnsla er best fyrir mismunandi miðla.
Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða