Photoshop - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 25. ágúst
Farið er í gegnum fjölbreytt verkefni þar sem kennt er á grunnverkfæri myndvinnslu í Photoshop Elements.
Námsþættir:
•	Hreinsa út bletti og bólur af andlitsmyndum.
•	Fjarlægja fólk eða hluti af mynd.
•	Færa hluti eða fólk á mynd.
•	Lagfæringar og litajöfnun.
•	Síur og lög.
•	Breyta bakgrunni.
•	Myndvinnsla fyrir ólíka miðla.
Hæfniviðmið
Að efla færni í myndvinnslu með Photoshop.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt.
Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma.
Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar veitir kennari námskeiðsins í síma 788 8805 frá kl. 10-20 eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 25. ágúst en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð39.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja kynnast og bæta færni sína í Photoshop.
- Gott að vitaVefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Kennari | 
|---|---|---|
| 25.08.2021 | Myndvinnsla með Photoshop. | Bjartmar Þór Hulduson |