Ás styrktarfélag | Lyf og lyfjagjöf
Hvernig tryggjum við örugga lyfjagjöf og bregðumst rétt við þegar eitthvað óvænt gerist?
Lyfjagjöf er mikilvægur þáttur í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða og krefst bæði nákvæmni og góðrar yfirsýnar.
Á þessu námskeiði er farið yfir helstu lyfjaflokka sem starfsfólk kemur helst að í starfi og hvernig þeir virka á líkamann.
Fjallað er um algengar aukaverkanir, hvað þarf að fylgjast með og hvernig bregðast má við ef grunur vaknar um ofskömmtun eða óæskileg viðbrögð.
Áhersla er lögð á skýra og hagnýta nálgun sem styður starfsfólk í að vinna af öryggi, með ábyrgð og með velferð skjólstæðinga að leiðarljósi.
Námskeiðið hjálpar þátttakendum að auka öryggi sitt í lyfjagjöf og styrkir faglega dómgreind í daglegum aðstæðum.
Efnistök:
- Helstu lyfjaflokkar og áhrif þeirra
- Algengar aukaverkanir og hvað þarf að fylgjast með
- Einkenni ofskömmtunar og fyrstu viðbrögð
- Öryggisatriði við lyfjagjöf
- Ábyrgð og góð vinnubrögð í daglegri framkvæmd
- Umræður og dæmi úr raunverulegum aðstæðum
Hæfniviðmið
Að öðlast betri skilning á virkni og áhrifum algengra lyfja og geti framkvæmt lyfjagjöf af öryggi og ábyrgð.
Að styrkja hæfni til að greina frávik og bregðast rétt við þegar þörf krefur.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og rými til spurningaHelstu upplýsingar
- Tími7. maí 2026, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknir á Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og einn eiganda Bráðaskólans
- StaðsetningÁs styrktarfélag, Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur. Salur: Vogur
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði faglærðum sem ófaglærðum, einnig nýju starfsfólki og þeim sem vilja rifja upp og styrkja þekkingu sína
- MatMæting og þátttaka
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 07.05.2026 | Lyf og lyfjagjöf | 13:00 | 16:00 | Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir |