Dómstólasýslan | Betri tímastjórnun og skipulag á vinnustaðnum
Margir kannast við það að finnast þeir aldrei ná að ljúka verkefnunum sínum, að tíminn sé of knappur, að verkefnin séu of mörg eða stöðugar truflanir komi í veg fyrir að árangur náist. Þetta getur valdið álagi og þreytu hjá þeim ásamt togstreitu í samskiptum á vinnustaðnum.
Á námskeiðinu er þátttakendum hjálpað að ná ákveðinni heildarsýn yfir vinnudaginn og vinnusvæðið sitt. Farið verður í hvað tíminn, í vinnunni eða heima, raunverulega fer og hvernig hægt er að forgangsraða verkefnum. Einnig verður skoðað hvernig hægt er að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin og jafnframt að takast á við ýmsar truflanir, s.s. tölvupósta og símtöl sem óhjákvæmilega setja oft mikið mark á vinnudaginn.
Á námskeiðinu verður m.a. farið í hvað felst í tímaþjófnaði, frestun, skipulagningu og áætlanagerð, fundum og fundarstjórn, að segja nei, jákvæðu hugarfari og sjálfstjórn.
Hæfniviðmið
Þátttakendur munu að námskeiðinu loknu:
- geta náð betri stjórn á vinnudeginum og eigin líðan í vinnunni
- geta greint núverandi nýtingu á eigin tíma
- geta forgangsraðað verkefnum út frá mikilvægi
- geta sett markmið og unnið skipulag og áætlanir úr frá þeim
- geta borið kennsl á ýmsar truflanir og tímaþjófa og beitt aðferðum til að draga úr áhrifum þeirra
Hæfniviðmið
Að efla tímastjórnun þátttakenda til að ná fram betri nýtingu á tímanum og meiri vellíðan.
Að kenna þátttakendum að þekkja og fanga tímaþjófa og truflanir.
Að efla skipulagsfærni starfsfólks.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræðurHelstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 26. september kl. 15:00 - 16:00
- Lengd1 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
- StaðsetningVefnám á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurAllt starfsfólk dómstólanna
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatÞátttaka
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
26.09.2023 | Betri tímastjórnun og skipulag á vinnustaðnum | 15:00 | 16:00 | Ingrid Kuhlman |