Myndvinnsla með gervigreind

Viltu læra að búa til og breyta myndum með hjálp gervigreindar?

Gervigreind hefur gjörbreytt myndvinnslu og opnað nýjar víddir fyrir alla. Á þessu námskeiði lærir þú að nýta krafta gervigreindar til að búa til og breyta myndum á áhrifaríkan hátt. Þú kynnist einföldum verkfærum sem gera þér kleift að umbreyta hugmyndum í myndir, laga eða bæta tiltekin atriði og þróa sjónrænt efni sem nýtist í starfi eða námi. Námskeiðið er hannað fyrir byrjendur og krefst ekki fyrri reynslu af myndvinnslu.

Efnistök:

  • Yfirlit yfir helstu gervigreindarverkfæri fyrir myndvinnslu
  • Myndagerð út frá texta (texti í mynd)
  • Breytingar á eldri myndum (litir, stíll, andrúmsloft)
  • Að fjarlægja bakgrunna og sameina myndir
  • Að búa til hreyfimyndir úr kyrrmyndum
  • Hagnýtar leiðir til að nota gervigreind í skapandi verkefnum
  • Hvernig á að skrifa gagnlegar, skýrar myndkvaðningar (prompts) 

Hæfniviðmið

Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nýta gervigreind við myndvinnslu og auka þannig sköpunarmöguleika og skilvirkni

Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja læra að nýta gervigreind við myndvinnslu, hvort sem er í starfi, námi eða frítíma, án þess að þurfa fyrri reynslu af myndvinnsluforritum
  • Mat
    Verkefnaskil

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.05.2026Myndvinnsla með gervigreind10:0004:00Bjartmar Þór Hulduson