Ás styrktarfélag | Meðhöndlun matvæla
Viltu auka öryggisvitund við meðhöndlun matvæla á vinnustaðnum?
Á þessu námskeiði er farið yfir helstu atriði sem skipta máli þegar unnið er með matvæli á sambýlum og öðrum starfsstöðum þar sem matargerð fer fram. Áhersla er lögð á skýra og hagnýta þekkingu sem auðvelt er að yfirfæra á dagleg verkefni.
Fjallað er um hvernig draga má úr hættu á smiti, tryggja rétta meðhöndlun og geymslu matvæla og skapa öruggt umhverfi fyrir bæði starfsfólk og íbúa.
Efnistök:
- Grunnatriði matvælaöryggis og algengar hættur
- Örugg meðhöndlun og geymsla matvæla
- Rétt hitastig við matreiðslu, kælingu og framreiðslu
- Hreinlæti, þrif og sótthreinsun vinnuumhverfis og áhalda
- Persónulegt hreinlæti við meðhöndlun matvæla
- Ofnæmisvaldar og hvernig draga má úr áhættu
- Umræður, samantekt og spurningar
Hæfniviðmið
Að auka skilning á meðhöndlun matvæla og matvælaöryggi
Að læra samræmd vinnubrögð
Öðlast aukið sjálfstraust í eldhúsinu
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður
Helstu upplýsingar
- Tími25. mars 2026 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðrún Sigurgeirsdóttir, matreiðslukennari í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík
- StaðsetningÁs styrktarfélag, Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur. Salur: Vogur
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk Áss styrktarfélags sem kemur að matreiðslu eða meðhöndlun matvæla í starfi, bæði byrjendur en líka þau sem vilja rifja upp góð vinnubrögð
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 25.03.2026 | Meðhöndlun matvæla | 13:00 | 16:00 | Guðrún Sigurgeirsdóttir |