Viðurkenndur bókari - Opni háskólinn í HR

Námslínan skiptist í tvö námskeið: 

Reikningshald: 
Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á. Mikil áhersla er lögð á notkun Excel.

Skattskil og upplýsingakerfi: Námskeiðið veitir nemendum almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Lögð er áhersla á að bæta þekkingu nemenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta. Einnig verður farið yfir grunnatriði innra eftirlits og öryggis í upplýsingakerfum.

Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í staðarlotur Excel námskeiðsins. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð nemenda.

Upptökur af fyrirlestrum verða birtar inn á samskiptavef nemenda daginn eftir að fyrirlestrar fara fram. Tvær staðarlotur verða haldnar í Opna háskólanum í HR yfir námstímann. Staðarloturnar verða ekki teknar upp. 

Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið. 

Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.

Hæfniviðmið

Að undirbúa nemendur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.

Fyrirkomulag

Námið er 132 klst. og stendur nemendum til boða bæði í staðarnámi og fjarnámi. Kennt er tvisvar til þrisvar í viku kl. 17-21. Námið hefst í ágúst og lýkur í desember.

Fyrirlestrar og dæmatímar
Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og í dæmatímum þar sem farið er í verklegar æfingar í Excel.

Upptökur úr tímum
Upptökur af fyrirlestrum eru birtar á vefnum daginn eftir að fyrirlestrar fara fram og bjóða upp á sveigjanleika fyrir nemendur.

Skynsamlegt er að gera ráð fyrir að þurfa að taka frí frá vinnu á helstu álagstímum. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins.

Kennsluáætlun í staðarnám

Kennsluáætlun í fjarnám

Þeir sem skrá sig hjá Starfsmennt þurfa einnig að skrá sig hjá Háskólanum í Reykjavík en þar er hægt að fá nánari upplýsingar um námið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Námið hefst í ágúst 2021.
  • Lengd
    132 klst.
  • Umsjón
    Lúðvík Þráinsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Helga Hauksdóttir, lögfræðingur hjá Ernst & Young, Emil Viðar Eyþórsson og Páll Daði Ásgeirsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Tryggvi R. Jónsson, deildarstjóri rekstrarlausna Advania á Akureyri
  • Staðsetning
    Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1, 101 Reykjavík, Mars-álma, 2. hæð.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.
  • Gott að vita
    Öðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Opna háskólanum í HR, s. 599 6300.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Að loknum hverjum hluta námsins þreyta nemendur próf á vegum ráðuneytisins til að öðlast réttindi sem viðurkenndur bókari (þrjú próf).
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
09.08.2021Viðurkenndur bókariÝmsir kennarar koma að náminu.