SSH | Traust, tengsl og tilgangur

Á þessu námskeið verður skoðað hvernig traust og tengslamyndun getur haft áhrif á samskipti sem og velferð og vellíðan einstaklinga.

Einnig verður farið yfir mikilvæg þess að einstaklingar geti haft svigrúm og tækifæri til að upplifa tilgang í lífi sínu.

Einstaklingar með fötlun upplifa margir hverjir margþætt samskipti, við fjölskyldu, vini og umönnunaraðila og því er mikilvægt að lita á hið sammannlega í samtali varðandi fötlun og gefa því svigrúm að við erum manneskjur áður en við erum nokkuð annað.

Einnig verður farið inn á mismunandi samskiptamáta og kosti upplýstra samskipta.

Traust og tengslamyndun eru grundvallarþættir í gefandi og uppbyggjandi samskiptum. 

Hæfniviðmið

Að öðlast innsýn varðandi mikilvægi traust og tengslamyndunar í samskiptum

Að geta gert sér grein fyrir hvernig traust og tengsl getur haft áhrif á velferð og vellíðan einstaklings

Að geta gert sér grein fyrir hvernig traust og tengsl getur haft áhrif á birtingarform hegðunar og tjáningar

Að öðlast innsýn um mikilvægi tilgangs í lífi einstaklings

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    22. október 2025, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Ingibjörg Hildur Stefánsdóttir, PhD in theology of disability (fötlunar guðfræði), MSc applied psychology, nemi í PhD og MSc
  • Staðsetning
    Húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélagi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
22.10.2025Traust, tengsl og tilgangur09:0012:00Ingibjörg Hildur Stefánsdóttir