Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Það er réttur allra manna að búa við öryggi á efri árum og geta notið þeirra áhyggjulaust. Þjónusta við aldrað fólk sem býr við fötlun skal vera fjölbreytt og miðuð við þarfir hvers og eins.
Þar sem öldrun fólks með þroskahömlun hefst oft fyrr en hjá öðrum verður þjónusta fyrir þann hóp fyrst og fremst að taka mið af mati á aðstæðum og heilsu einstaklinganna en ekki einvörðungu aldri.
Á námskeiðinu er leitast við að dýpka þekkingu þátttakenda á öldrun og öldrunarferli hjá fötluðu fólki. Fjallað verður um einkenni heilabilunar og hvernig sé best að bregðast við.
Að geta gert grein fyrir öldrunarferli hjá fötluðu fólki.
Að geta gert grein fyrir einkenni á byrjun nokkurra tegunda heilabilunar hjá fólki og hvernig bregðast skuli við henni.
Að geta gert grein fyrir leiðum sem standa fólki með heilabilun til boða.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.