Verkefna- og tímastjórnun í Outloook
Á námskeiðinu lærir þú að bæta skipulag og samskipti, einfalda tímastjórnun og verkefnastýringu ásamt því hvernig þú getur haldið betur utan um tengiliði og viðskiptavini.
Þú lærir að halda dagbók, bóka fundi, sinna tímastjórnun og almenna skjalastjórnun. Þú lærir að geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti. Þú færð verkfæri til þess að auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum. Þú lærir að skrifa minnismiða, geyma þá og flokka, setja upp ferilskrá og skipulag ásamt því að senda, taka á móti og vinna með tölvupóst.
Hæfniviðmið
Að geta notað Outlook til skilvirkari tímastjórnunar og skipulags.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 2. nóvember 2023
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- Verð39.500 kr.
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja bæta almenna færni sína í Outlook.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatVerkefnaskil
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
02.11.2023 | Verkefna- og tímastjórnun í Outloook | Bjartmar Þór Hulduson |