Tæknisjálfstraustið

Námskeiðið er fyrir öll sem langar til að styrkja hugarfar sitt gagnvart tækni og nýjungum.

Kjarnaspurning námskeiðisins er: Hvernig þróa ég með mér vaxtarhugarfar?

Við þurfum nefnilega á því hugarfari að halda til þess að fastmótaðar hugmyndir um það hver við erum, hvað við getum, hvað við getum ekki, hverju við erum góð í og hverju léleg - geti verið brotnar upp.

Með vaxtarhugarfarinu getum við betur tileinkað okkur nýja hluti, séð á okkur nýjar hliðar, vaxið í áskorunum sem voru alltaf fjarlægar en eftirsóknarverðar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins.

Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum.

Skráning er opin til 3. júlí en upphafið er valfrjálst. 

Hæfniviðmið

Að styrkja hugarfar sitt gagnvart tækni og nýjungum.

Að þróa með sér vaxtarhugarfar.

Að brjóta upp fastmótaðar hugmyndir um það sem við getum og það sem við gerum ekki nægilega vel.

Að þróa hæfileikann til að tileinka sér nýja hluti og sjá nýjar hliðar á hlutunum.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er að fullu stafrænt, það er á netinu, tilbúið og þátttakendur geta tekið námskeiðið þegar og þar sem þeim hentar, í tölvu, síma eða spjaldtölvu.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins.

Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum.

Skráning er opin til 3. júlí en þú getur byrjað hvenær sem er eftir að skráning er staðfest.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 3. júlí en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Kristín Hrefna Halldórsdóttir, stjórnandi hjá Origo þar sem hún leiðir gæða- og innkaupa lausnir.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar
  • Markhópur
    Fyrir öll sem langar til að styrkja hugarfar sitt gagnvart tækni og nýjungum.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
  • Mat
    Áhorf

Gott að vita

Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar, aðrir geta skráð sig hjá Opna Háskólanum í HR.

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
03.07.2023TæknisjálfstraustiðKristín Hrefna Halldórsdóttir