Heilsugæslan - Styttri vinnuvika, betri tímastjórnun - Vefnám
Styttri vinnuvika er liður í að auka starfsánægju, samræma betur starf og einkalíf og bæta líðan í starfi. Vinnutímastytting kallar á góða tímastjórnun, skipulagshæfni og forgangsröðun þar sem verkefnunum sem starfsmenn sinna fækkar yfirleitt ekki.
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í hvernig þeir verja tíma sínum í dag og læra að forgangsraða verkefnum. Farið er í mikilvægi þess að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin með góðri skipulagningu og takast á við truflanir af ýmsum toga, eins og símtöl og tölvupóstinn. Tekin eru fyrir atriði eins og algengir tímaþjófar, forgangsröðun, frestun, skipulagning og áætlanagerð.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja læra aðferðir til að stjórna tíma sínum betur.
Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
Algengir tímaþjófar.
Forgangsröðun, skipulagning og áætlanagerð.
Truflanir af ýmsum toga.
Ávinningur:
Betra skipulag.
Betri forgangsröðun verkefna.
Meiri tími fyrir mikilvægustu verkefnin.
Kennsluaðferðir:
Fyrirlestur.
Umræður.
Virk þátttaka.
Námskeiðið verður í boði í fjarnámi í gegnum fjarfundakerfið Zoom sem margir þekkja í dag. Kerfið er einfalt í notkun en þátttakendur fá sendan hlekk í fundarboði sem þeir virkja þegar námskeiðið hefst. Nauðsynlegt er að hafa góða nettengingu, myndavél (nóg að hún sé innbyggð í tölvunni) og hljóðnema. Í Zoom fjarfundakerfinu sjá þátttakendur það sem fram fer á skjánum og geta einnig séð kennara og aðra þátttakendur, tekið þátt í umræðum og spjalli.

Hæfniviðmið
Að auka færni í að stjórna tíma sínum.
Að efla skipulagshæfni.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og virk þátttakaHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 22. október kl. 14:00-16:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatÞátttaka í námskeiðinu
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia@smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
22.10.2020 | Styttri vinnuvika-betri tímastjórnun | Ingrid Kuhlman |