Word I
Viltu læra að nýta Word á markvissan hátt í daglegu starfi?
Word er forritið sem flestir nota til að skrifa og búa til skjöl, en margir þekkja aðeins hluta af því sem það getur.
Á þessu námskeiði kynnist þú grunnatriðum í notkun Word. Þú lærir helstu skipanir, að setja upp skjöl á skipulegan hátt, vinna með texta og útlit, setja inn myndir og töflur og undirbúa skjöl fyrir prentun.
Efnistök:
- Helstu skipanir og verkfæri
- Textauppsetning og útlitsmótun
- Myndefni og aðlögun að texta
- Töflur og myndrit
- Sniðmát og prentun
Hæfniviðmið
Að öðlast grunnfærni í Word sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum og eykur sjálfstraust í notkun forritsins
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja styrkja færni sína í Word, sérstaklega þau sem eru að byrja eða vilja rifja upp grunnatriði
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Word I | 10:00 | 04:00 | Bjartmar Þór Hulduson |