BVV - Kostnaðarmatslíkan - námskeið fyrir stjórnendur og fjármálastjóra - Vefnám. 25. jan. kl. 11:00-12:00.
Kostnaðarmatslíkan er viðbót við mönnunarlíkanið Gullinbrú sem útbúið hefur verið og er til að auðvelda stjórnendum innleiðingu á betri vinnutíma í vaktavinnu. Markmið með kostnaðarmatslíkaninu er að sýna áhrif forsendna mönnunar eftir umbótasamtal og betri vinnutíma á launakostnað. Gullinbrú í heild sinni verður nýtt til að meta hvort mönnunarforsendur teljist standast á vinnustað vegna kerfisbreytingarinnar sem tekur gildi þann 1. maí næstkomandi. Fjármálastjórum er bent sérstaklega á að koma á námskeið á kostnaðarmatslíkanið. Þeir sem ekki hafa sótt námskeið á mönnunarlíkan þurfa að kynna sér Gullinbrú vel áður en námskeið á kostnaðarmatslíkanið er sótt.
Kennt verður í gegnum TEAMS forritið.
Allar nánari upplýsingar um Gullinbrú er að finna hér.
Helstu upplýsingar
- TímiMánudagur 25. janúar kl. 11:00-12:00
- Lengd1 klst.
- UmsjónBára Hildur Jóhannsdóttir
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er fyrir stjórnendur og fjármálastjóra
- Gott að vitaEf þátttakandi getur ekki tekið þátt í námskeiði sem hann hefur skráð sig á, verður viðkomandi að afskrá sig á „mínum síðum“, þar sem aðeins er hægt að skrá sig einu sinni á hvert námskeið.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia hjá smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
25.01.2021 | Kostnaðarmatslíkan | Bára Hildur Jóhannsdóttir |