Mindmap, hugarkort
Viltu skipuleggja hugmyndir á sjónrænan hátt?
Hugarkort eru öflug aðferð til að sjá heildarmyndina og skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt. Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun. Á þessu námskeiði færð þú innsýn í hvernig á að búa til hugarkort, hvaða aðferðir henta best og hvernig gervigreind getur stutt við ferlið. Þú lærir að nýta þessi verkfæri til að auðvelda þér skipulagningu, lausnaleit og skapandi hugsun í daglegu starfi.
Efnistök:
- Aðferðafræði hugarkorta – hvernig á að hugsa og skipuleggja
- Uppsetning og gerð hugarkorta
- Aðferðir til að skrá og tengja hugmyndir
- Gervigreind í hugarkortagerð
- XMind forritið – frír hugbúnaður
- Hagnýting hugarkorta í daglegum verkefnum og skipulagi
- Hugarkort sem glósutækni og hugmyndavinna
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nota hugarkort og gervigreind til að skýra hugsun, skipuleggja verkefni og styðja við skapandi vinnu
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja bæta færni sína í hugmyndavinnu og skipulagi og nýta hugarkort og gervigreind til að styðja við daglegt starf, óháð fyrri reynslu
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Mindmap, hugarkort | 10:00 | 04:00 | Bjartmar Þór Hulduson |