Outlook, verkefna- og tímastjórnun
Viltu nýta Outlook betur til að bæta skipulag og gera samskipti skilvirkari?
Outlook er meira en tölvupóstur, það er öflugt verkfæri sem getur hjálpað þér að halda utan um verkefni og tengiliði.
Á þessu námskeiði lærir þú að forgangsraða verkefnum og spara tíma með fjölbreyttum verkfærum sem Outlook býður uppá. Þú færð leiðsögn í að halda dagbók, bóka fundi og almenna skjalastjórnun. Einnig verður skoðað hvernig þú getur notað gervigreindartól eins og Copilot til að stytta einfalda vinnuna.
Efnistök:
- Tölvupóstur: móttaka, flokkun, síun og vinnuferlar sem spara tíma
- Dagatal: bóka fundi, yfirsýn á eigin tíma og annarra
- Verkefni: forgangsröðun og eftirfylgni
- Skipulag: almenn skjalastjórnun, dagbók og minnismiðar
- Tengiliðir og viðskiptavinir: skráning, flokkun og umsjón samskipta
- Verkefnastjórnun og tímastjórnun
- Copilot: textavinna og skipulag
Hæfniviðmið
Að veita þátttakendum hagnýta þekkingu og færni til að nýta Outlook og gervigreindartól til að bæta skipulag, tímastjórnun og samskipti í daglegu starfi
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja bæta færni sína í notkun Outlook til að halda utan um verkefni, tíma og samskipti, óháð fyrri reynslu
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Outlook, verkefna- og tímastjórnun | 10:00 | 04:00 | Bjartmar Þór Hulduson |